Barcelona ætlar að setja mikið púður í að styrkja leikmannahópinn í sumar en Anthony Gordon fór í læknisskoðun hjá félaginu.
Newcastle samþykkti 70 milljón punda tilboð í leikmanninn á dögunum.
Barcelona er ekki hætt því félagið ætlar næst að fá Julian Alvarez, sóknarmann Atletico Madrid, til liðs við sig. Fabrizio Romano greinir frá því að Alvarez hafi tilkynnt félaginu sínu að hann vilji fara.
Talið er að Barcelona þurfi að borga yfir 100 milljónir evra fyrir argentíska sóknarmanninn. Barcelona hefur verið í miklum fjárhagsvandræðum undanfarin ár en Ferran Torres er meðal leikmanna sem félagið vill selja til að fjármagna frekari kaup.


