Barca hefur áhuga á leikmanni Arsenal - Dias hugsar sér til hreyfings - Scott orðaður við Man Utd og Chelsea -
   fös 29. maí 2026 16:42
Elvar Geir Magnússon
Arteta segir að Timber og Madueke séu klárir
Verður Jurrien Timber í hægri bakverði hjá Arsenal á morgun?
Verður Jurrien Timber í hægri bakverði hjá Arsenal á morgun?
Mynd: EPA
Arsenal mætir ríkjandi Evrópumeisturum Paris Saint-Germain í úrslitaleik Meistaradeildarinnar klukkan 16 (að íslenskum tíma) á morgun. Leikurinn fer fram í Búdapest.

Mikel Arteta, stjóri Arsenal, ræddi við fjölmiðlamenn á fréttamannafundi í dag.

Þar greindi hann frá því að bakvörðurinn Jurrien Timber og sóknarleikmaðurinn Noni Madueke væru báðir klárir í leikinn á morgun en Ben White væri fjarri góðu gamni.

Hollendingurinn Timber hefur ekki spilað síðan í mars vegna nárameiðsla en Arteta segir að hann sé klár í að byrja leikinn á morgun.
Hverjir vinna Meistaradeildina?
Slapp
banner