Barca hefur áhuga á leikmanni Arsenal - Dias hugsar sér til hreyfings - Scott orðaður við Man Utd og Chelsea -
   fös 29. maí 2026 15:30
Kári Snorrason
Þórir Jóhann til Venezia?
Spilaði 146 mínútur í Serie A á síðasta tímabili.
Spilaði 146 mínútur í Serie A á síðasta tímabili.
Mynd: EPA
Þórir Jóhann Helgason, leikmaður Lecce, er sagður á leið til Venezia á Ítalíu.

Samningur Þóris við Lecce rennur út í lok júní og ítalski miðillin Trivenetogoal fullyrðir að hann hafi náð samkomulagi við Feneyjarfélagið.

Í umfjöllun miðilsins segir að Venezia eigi þó eftir að ákveða hvort Þórir verði í leikmannahópi liðsins eða lánaður annað.

Þórir kom við sögu í átta leikjum hjá Lecce á tímabilinu en liðið endaði í 17. sæti deildarinnar.

Venezia tryggði sér aftur upp í Serie A á nýloknu tímabili en liðið endaði í fyrsta sæti í Serie B.



Slapp
banner
banner