Magnús Örn Helgason hefur ákveðið að hætta sem yfirmaður fótboltamála hjá Gróttu.
Hann mun í byrjun næsta mánaðar stíga til hliðar að eigin ósk.
Hann mun í byrjun næsta mánaðar stíga til hliðar að eigin ósk.
Magnús er uppalinn Gróttumaður og þjálfaði hjá félaginu frá haustinu 2007 til ársins 2021 þegar hann færði sig til KSÍ. Í febrúar 2024 sneri Magnús aftur á Seltjarnarnesið og tók við nýju starfi sem yfirmaður fótboltamála.
„Maggi hefur sinnt starfi sínu af metnaði, eldmóði og ástríðu fyrir Gróttu og átt stóran þátt í þeirri góðu vegferð sem knattspyrnudeildin er á. Við erum afar þakklát fyrir hans framlag til félagsins og óskum honum alls hins besta í því sem hann tekur sér fyrir hendur,“ segir Helgi Héðinsson fyrir hönd stjórnar fótboltadeildar Gróttu.
Magnús segist hlakka til að fylgjast með því sem framundan er hjá Gróttu.
„Ég er þakklátur fyrir að hafa fengið að starfa aftur hjá uppeldisfélaginu mínu. Það var áskorun að byrja í glænýju starfi hjá deildinni en þessi tími var lærdómsríkur og ég mun búa að reynslunni alla tíð. Það er erfitt að kveðja enda skiptir Grótta mig miklu máli. En ég veit að það er gott fólk innan félagsins sem hefur metnað til að gera enn betur og mun halda vinnunni áfram. Það eru spennandi tímar framundan hjá bæði karla og kvennaliðunum og ég hlakka til að fylgjast með,” segir Magnús en hann og Sigrún kona hans eiga von á sínu öðru barni á næstu vikum.



