Barca hefur áhuga á leikmanni Arsenal - Dias hugsar sér til hreyfings - Scott orðaður við Man Utd og Chelsea -
   fös 29. maí 2026 16:00
Elvar Geir Magnússon
Börsungar reyna við Gvardiol
Gvardiol er 24 ára.
Gvardiol er 24 ára.
Mynd: EPA
Cadena Cope segir að Barcelona sé að vinna í að reyna að kaupa króatíska varnarmanninn Josko Gvardiol frá Manchester City.

Það er nóg að gera á skrifstofu Börsunga, sem eru að fara að kynna Anthony Gordon á eftir og eru að eltast við Julián Alvarez.

Barcelona hefur verið orðað við Alessandro Bastoni varnarmann Inter en virðist hafa misst áhugann á honum.

Félagið ku vilja fá Gvardiol, sem á tvö ár eftir af samningi sínum við City. Hann á 122 leiki fyrir þá ljósbláu.
Slapp
banner
banner
banner