Barca hefur áhuga á leikmanni Arsenal - Dias hugsar sér til hreyfings - Scott orðaður við Man Utd og Chelsea -
   fös 29. maí 2026 15:45
Elvar Geir Magnússon
Dembele og Hakimi klárir í úrslitaleikinn gegn Arsenal
Dembele verður með á morgun.
Dembele verður með á morgun.
Mynd: EPA
„Ég er 100% klár og er spenntur fyrir leiknum. Ég var aldrei hræddur um að missa af honum," segir Ousmane Dembele, leikmaður Paris Saint-Germain, en á morgun leika Frakklandsmeistararnir gegn Arsenal í úrslitaleik Meistaradeildarinnar. Leikurinn verður klukkan 16 að íslenskum tíma.

Luis Enriqe, stjóri PSG, segir að auk Dembele sé Achraf Hakimi einnig klár í slaginn í Búdapest. PSG er ríkjandi Evrópumeistari.

Hakimi skoraði í sigrinum gegn Inter í úrslitunum í fyrra en hann hefur ekki spilað síðan í 5-4 leiknum fræga gegn Bayern München þann 28. apríl, vegna meiðsla aftan í læri.

Dembele fór af velli í lokaumferð frönsku deildarinnar og missti af æfingu tíu dögum fyrir úrslitaleikinn.

Nuno Mendes hefur einnig verið að glíma við meiðsli en eins og Dembele og Hakimi er hann klár fyrir morgundaginn.
Hverjir vinna Meistaradeildina?
Slapp
banner
banner
banner