Barca hefur áhuga á leikmanni Arsenal - Dias hugsar sér til hreyfings - Scott orðaður við Man Utd og Chelsea -
   fös 29. maí 2026 16:57
Kári Snorrason
Atletico fer hamförum á X - Kynna helstu stjörnur Barcelona sem nýja leikmenn
Mynd af Lamine Yamal sem félagið birti á samfélagsmiðlum sínum.
Mynd af Lamine Yamal sem félagið birti á samfélagsmiðlum sínum.
Mynd: Atletico Madrid
Það er mikill pirringur í Atletico Madrid eftir sögusagnir um Julian Alvarez, framherja liðsins, sem hefur verið orðaður við Barcelona.

Félagið sendi frá sér harðorða yfirlýsingu í gær eftir fréttir á Spáni um að hann vildi fara og félagið væri tilbúið að selja hann fyrir rétt verð.

Þeir telja Börsunga hafa farið fram úr sér og eru þreyttir á lygum og ákveðinni herferð Barcelona um hvernig þeir sækja leikmenn.

Atletico hefur nú tekið á það ráð að kynna helstu stjörnur Barcelona sem væntanlega leikmenn Atletico á opinberri X (áður Twitter) síðu sinni.

Þar hafa þeir birt myndir af Lamine Yamal, Pedri og Raphinha í treyju Atletico og á myndunum stendur 'Breaking' og 'Here we go!', sem er slagorð stjörnublaðamannsins Fabrizio Romano.

Við færsluna um Yamal er skrifað að félagið hafi sent fax-skeyti til Barcelona með tilboði sínu. Tilboðið hljóðar upp á fjóra miða á Bad Bunny tónleika sem haldnir eru á morgun, áskrift að streymisveitu ABC og heill poki af sólblómafræjum.

Á enskri X síðu félagsins segir í færslu: Ekki ekki trúa öllu sem þú sérð, sérstaklega ef það er tengt Barcelona.




Slapp
banner
banner