U19 ára landslið kvenna er í riðli með Austurríki, Spáni og Sviss í lokakeppni EM sem fer fram í sumar.
Þetta er mjög erfiður riðill þar sem Spánverjar eru sögulega besta lið keppninnar. Þær spænsku hafa unnið sjö sinnum frá upphafi EM U19 ára landsliða 2002. Þar af hafa þær unnið keppnina sex sinnum af síðustu sjö skiptum sem hún hefur verið haldin.
Spænska landsliðið hefur unnið mótið síðustu fjögur ár í röð en aðeins átta þjóðir taka þátt í lokakeppninni.
Mótið er leikið í Bosníu og Hersegóvínu dagana 27. júní - 10. júlí.
Bosnía, Svíþjóð, Pólland og Þýskaland eru í hinum riðli mótsins.
15.04.2026 15:05
Donni í skýjunum: Ótrúlegt afrek hjá stelpunum





