Arnór Ingvi Traustason var léttur og kátur eftir 4-0 sigur á Liechtenstein í kvöld.
Ísland spilaði vel í kvöld og var sigurinn í raun aldrei í hættu og hefði getað orðið stærri.
Þó eitthvað hefði mátt fara betur var Arnór bæði sáttur við liðið sem og sig sjálfan.
Ísland spilaði vel í kvöld og var sigurinn í raun aldrei í hættu og hefði getað orðið stærri.
Þó eitthvað hefði mátt fara betur var Arnór bæði sáttur við liðið sem og sig sjálfan.
Lestu um leikinn: Ísland 4 - 0 Liechtenstein
„Við lögðum upp með að fara yfir nokkur atriði sem við gerðum í leiknum. Við erum ánægðir þó eitthvað hefði mátt fara betur."
„Já, ég kom ágætlega inn í þetta þó maður getur alltaf gert eitthvað betur en ég er sáttur."
Hann var ánægður með mörkin sem Eiður Smári og Birkir skoruðu en þau voru ansi falleg.
„Frábært að sjá Eið Smára skora og Birkir var alveg þvílík þruma. Þetta var once in a lifetime."
Viðtalið má sjá í heild sinni hér að ofan.






















