Hörð barátta um Rogers - Juventus vill Alisonn - Olise orðaður við Real
Yngsti aðalmarkvörðurinn í Bestu - „Erfiðir átta mánuðir"
Thelma Karen: Bjóst ekki við svona stóru hlutverki
Álitið - Hver verður skemmtilegastur í viðtölum?
Höskuldur hungraður: Ætlum að svara fyrir síðasta tímabil
Veit ekki hvort Blikarnir fari í rokk og ról
Óli Skúla: Erum með þrjá öfluga miðverði
Sveindís: Komið og horfið á okkur vinna Úkraínu
Fyrirliðinn á leið í sinn fyrsta leik í efstu deild - „Pressan kemur frá sjálfum mér"
Álitið - Hver er huggulegastur?
„Svíafíflið þitt“ - Gæðastjórinn heldur rígnum lifandi
Hólmar Örn: Hefði engu máli skipt hvernig við hefðum æft
Guðrún sendir skýr skilaboð fyrir heimaleikina
Katla: Er alltaf að segja henni að koma og spila með íslenska landsliðinu
Sölvi Geir: Skotmarkið á okkur er stærra og við þurfum að gera meira
Arna Eiríks klár í slaginn: Ekki alveg þessi týpísku meiðsli
Gísli Eyjólfs: Hefði verið rómantík að fá að enda ferlana saman
Spáin kom Sigga á óvart: Eina sem þetta gerir er að henda bensíni á klúbbinn
Haraldur Freyr: Ætlum að ná í sigur í Frostaskjóli
Jói Kalli: Spurning hvort það verði Landeyjahöfn eða Þorlákshöfn
Ísak nýr fyrirliði FH: Var einn af þeim yngri en orðinn einn sá elsti
   mið 08. júní 2016 12:30
Elvar Geir Magnússon
Annecy
Birkir Már: Hausinn verður rétt skrúfaður á
Icelandair
Birkir Már á æfingu í Annecy í morgun.
Birkir Már á æfingu í Annecy í morgun.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Bakvörðurinn Birkir Már Sævarsson fékk góðan svefn í nótt eftir ferðalagið til Annecy í gær. Hann segist kannski hafa sofið fulllengi en er mjög sáttur við allar aðstæður.

„Þetta er glæsilegt í alla staði, það er ekki hægt að kvarta yfir neinu," segir Birkir Már.

Það má búast við því að varnarmennirnir muni hafa í nægu að snúast í fyrsta leik gegn Portúgal.

„Það veltur mikið á okkur í þeim leik. Það verður allt liðið að hjálpast að eins og við gerðum í undankeppninni."

Birkir Már hefur engar áhyggjur af því að íslenska liðið muni ekki sýna sömu frammistöðu í lokakeppninni eins og það gerði í undankeppninni þó vináttulandsleikirnir hafi margir hverjir verið daprir.

„Æfingaleikir eru æfingaleikir og þar er verið að prófa leikmenn og ýmsa hluti. Þegar við erum komnir í alvöru leiki verður hausinn rétt skrúfaður á," segir Birkir Már en viðtalið má sjá í heild í sjónvarpinu hér að ofan.
Slapp
banner