Hörð barátta um Rogers - Juventus vill Alisonn - Olise orðaður við Real
Yngsti aðalmarkvörðurinn í Bestu - „Erfiðir átta mánuðir"
Thelma Karen: Bjóst ekki við svona stóru hlutverki
Álitið - Hver verður skemmtilegastur í viðtölum?
Höskuldur hungraður: Ætlum að svara fyrir síðasta tímabil
Veit ekki hvort Blikarnir fari í rokk og ról
Óli Skúla: Erum með þrjá öfluga miðverði
Sveindís: Komið og horfið á okkur vinna Úkraínu
Fyrirliðinn á leið í sinn fyrsta leik í efstu deild - „Pressan kemur frá sjálfum mér"
Álitið - Hver er huggulegastur?
„Svíafíflið þitt“ - Gæðastjórinn heldur rígnum lifandi
Hólmar Örn: Hefði engu máli skipt hvernig við hefðum æft
Guðrún sendir skýr skilaboð fyrir heimaleikina
Katla: Er alltaf að segja henni að koma og spila með íslenska landsliðinu
Sölvi Geir: Skotmarkið á okkur er stærra og við þurfum að gera meira
Arna Eiríks klár í slaginn: Ekki alveg þessi týpísku meiðsli
Gísli Eyjólfs: Hefði verið rómantík að fá að enda ferlana saman
Spáin kom Sigga á óvart: Eina sem þetta gerir er að henda bensíni á klúbbinn
Haraldur Freyr: Ætlum að ná í sigur í Frostaskjóli
Jói Kalli: Spurning hvort það verði Landeyjahöfn eða Þorlákshöfn
Ísak nýr fyrirliði FH: Var einn af þeim yngri en orðinn einn sá elsti
   fim 09. júní 2016 20:00
Alexander Freyr Tamimi
Bjarni Jó: Hvenær hafa leikir minna liða verið leiðinlegir?
Bjarni Jó var sáttur með sína menn.
Bjarni Jó var sáttur með sína menn.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Bjarni Jóhannsson, þjálfari ÍBV, var að vonum ánægður með 2-0 sigur sinna manna gegn Stjörnunni í Garðabænum í kvöld.

Bjarni gat yfirgefið sinn gamla heimavöll með bros á vör, en hans menn áttu mjög góðan leik og unnu sanngjarnan sigur.

Lestu um leikinn: Stjarnan 0 -  2 ÍBV

„Ég fer héðan mjög sáttur, þetta var flottur leikur hjá okkur í dag. Við vorum vel stemmdir og mér fannst við vilja þetta meira," sagði Bjarni hress eftir leikinn. Hann viðurkennir að um opinn og skemmtilegan leik hafi verið að ræða.

„Hvenær hef ég stýrt liði þar sem leikirnir eru leiðinlegir?" sagði Bjarni léttur.

„Neinei, að öllu gamni slepptu var þetta fjörugt og mér fannst við mjög ferskir og hreyfanlegir og létum boltann ganga. Við vorum þrælfínir."

Bjarni viðurkennir að það hafi verið blendnar tilfinningar að snúa aftur á Samsung völlinn sem þjálfari annars liðs.

„Hún er auðvitað blendin. Hérna átti ég frábær ár og frábærar minningar, en nú er maður í hinu liðinu," sagði Bjarni.

Viðtalið við Bjarna má sjá hér að ofan.
Slapp
banner