Yankuba Minteh, leikmaður Brighton, er sagður ofarlega á óskalista á Liverpool fyrir sumargluggann. Daily Mail greinir frá.
Liverpool er í leit að arftaka Mohamed Salah sem mun yfirgefa félagið í sumar.
Félagið ætlar að skoða marga kosti og einn af þeim er hinn 21 árs gamli Minteh.
Samkvæmt Daily Mail vill Brighton fá að minnsta kosti tvöfalt það sem það greiddi Newcastle United fyrir hann árið 2024.
Arne Slot, stjóri Liverpool, þjálfaði Minteh hjá Feyenoord og gæti nú viljað endurnýja kynnin.
Yan Diomande hjá RB Leipzig, Francisco Conceicao hjá Juventus og Bazoumana Toure hjá Hoffenheim eru einnig kostir sem Liverpool gæti skoðað í sumar.



