Guardiola í árs frí og tekur svo við landsliði - Alonso vill sóknarmann Brentford - Bowen eftirsóttur
   fös 10. apríl 2026 20:25
Brynjar Ingi Erluson
Þýskaland: Klúður hjá Augsburg
Bazoumana Toure skoraði frábært mark fyrir Hoffenheim
Bazoumana Toure skoraði frábært mark fyrir Hoffenheim
Mynd: EPA
Augsburg 2 - 2 Hoffenheim
1-0 Alexis Claude-Maurice ('11 )
2-0 Michael Gregoritsch ('14 )
2-1 Robin Hranac ('35 )
2-2 Bazoumana Toure ('42 )
2-2 Alexis Claude-Maurice ('85 , Misnotað víti)

Augsburg kastaði frá sér tveggja marka forystu og klúðraði vítaspyrnu í 2-2 jafntefli gegn Hoffenheim í þýsku deildinni í kvöld.

Heimamenn í Augsburg gátu ekki beðið um betri byrjun en þeir komust í 2-0 forystu á þriggja mínútna kafla.

Alexis Claude-Maurice skoraði frábært mark á 11. mínútu er hann fékk boltann fyrir utan teig, keyrði hægra megin og skaut boltanum síðan í fjærhornið áður en Michael Gregoritsch bætti við öðru er misskilningur varð á milli varnarmanna Hoffenheim sem leyfði Gregoritsch að taka á móti háum bolta áður en hann skaut honum neðst í hægra hornið.

Ekki byrjunin sem Hoffenheim var að búast við en þeir tóku sér tak og náðu að jafna á sjö mínútum undir lok fyrri hálfleiks. Robin Hranac minnkaði muninn með flugskalla eftir hornspyrnu og síðan jafnaði Bazoumana Toure, skotmark Liverpool, metin úr ómögulegu færi.

Hann fékk boltann vinstra megin í teignum, alveg upp við endalínu, en ákvað bara að láta vaða og fór boltinn í stöngina á fjær og í netið.

Það var ekki sama markaflóðið í þeim síðari en Augsburg fékk tækifæri til þess að taka öll stigin undir lok leiks er Bernardo braut af sér í teignum. Claude-Maurice fór á punktinn en setti boltann yfir markið.

Léttir fyrir Hoffenheim sem er þó svekkt að hafa ekki getað náð í fleiri stig í Meistaradeildarbaráttunni. Hoffenheim er í 5. sæti með 51 stig, tveimur stigum frá Meistaradeildarsæti en Augsburg í 10. sæti með 33 stig.
Stöðutaflan Þýskaland Bundesliga - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Bayern 34 28 5 1 122 36 +86 89
2 Dortmund 34 22 7 5 70 34 +36 73
3 RB Leipzig 34 20 5 9 66 47 +19 65
4 Stuttgart 34 18 8 8 71 49 +22 62
5 Hoffenheim 34 18 7 9 65 52 +13 61
6 Leverkusen 34 17 8 9 68 47 +21 59
7 Freiburg 34 13 8 13 51 57 -6 47
8 Frankfurt 34 11 11 12 61 65 -4 44
9 Augsburg 34 12 7 15 45 61 -16 43
10 Mainz 34 10 10 14 44 53 -9 40
11 Union Berlin 34 10 9 15 44 58 -14 39
12 Gladbach 34 9 11 14 42 53 -11 38
13 Hamburger 34 9 11 14 40 54 -14 38
14 Köln 34 7 11 16 49 63 -14 32
15 Werder 34 8 8 18 37 60 -23 32
16 Wolfsburg 34 7 8 19 45 69 -24 29
17 Heidenheim 34 6 8 20 41 72 -31 26
18 St. Pauli 34 6 8 20 29 60 -31 26
Slapp
banner
banner