UEFA hefur vísað kvörtunum Barcelona frá en félagið sendi opinbera kvörtun eftir 0-2 tapið gegn Atletico Madrid í 8-liða úrslitum Meistaradeildarinnar í síðustu viku.
UEFA segir að kvartanir Barcelona eigi ekki rétt á sér. Liðin mætast í seinni leiknum í Madrídarborg.
UEFA segir að kvartanir Barcelona eigi ekki rétt á sér. Liðin mætast í seinni leiknum í Madrídarborg.
Börsungar vildu fá vítaspyrnu á 54. mínútu í fyrri leiknum þegar Marc Pubill, varnarmaður Atletico, handlék knöttinn í eigin vítateig. Pubill hafði fengið gult spjald fyrr í leiknum.
Pubill stöðvaði boltann með hendinni eftir að markvörðurinn Juan Musso virtist hafa komið boltanum í leik með markspyrnu. Dómarinn Istvan Kovacs dæmdi ekkert og VAR dómarinn skarst ekki í leikinn.
Í opinberri kvörtun Barcelona segir félagið að þetta teljist sem stór mistök og kallaði eftir því að atvikið yrði skoðað. Eins og áður segir ákvað UEFA hinsvegar að vísa kvörtunum Börsunga frá og aðhafast ekkert.
Hansi Flick :Je ne comprends pas à quoi diable sert le VAR. Comment se fait-il que ce ne soit pas une main de Marc Pubill ? Pourquoi le VAR n’est-il pas intervenu si l’erreur de l’arbitre de champ est très claire ? C’est un penalty clair et un deuxième carton jaune pour Pubill. pic.twitter.com/zMImIlh4Bo
— Bamba_Culer ?????????????????? (@Bambakhadimsamb) April 8, 2026



