Ugarte efstur á óskalista Newcastle - Skotmark Liverpool og Chelsea kostar 60 milljónir - West Ham og Tottenham vilja miðjumann Barcelona
   þri 14. apríl 2026 05:55
Ívan Guðjón Baldursson
Meistaradeildin í dag - Erfitt fyrir Liverpool og Barca
Mynd: EPA
Mynd: EPA
Það eru gífurlega spennandi leikir á dagskrá í 8-liða úrslitum Meistaradeildarinnar í kvöld þar sem Englandsmeistarar Liverpool og Spánarmeistarar Barcelona reyna að koma til baka eftir tapleiki í síðustu viku.

Liverpool tekur á móti Evrópumeisturunum sjálfum í liði PSG á Anfield eftir að hafa steinlegið í fyrri leiknum í París. Lærlingar Arne Slot voru heppnir að tapa bara 2-0 til að gefa sjálfum sér möguleika á endurkomu á heimavelli.

Börsungar heimsækja Atlético til Madrídar í Spánarslag eftir að hafa tapað heimaleiknum afar óvænt. Þetta er ekki í fyrsta sinn á tímabilinu sem lærlingar Hansi Flick þurfa að koma til baka eftir tap gegn Atlético. Þetta gerðist líka í spænska bikarnum nema að þá vann atlético 4-0 á heimavelli og dugði 3-0 sigur Barca í seinni leiknum ekki til.

Þetta eru tveir ómissandi risaslagir þar sem fjögur af stærstu fótboltafélögum heims eru að berjast um sæti í undanúrslitum Meistaradeildarinnar.

Leikir kvöldsins
19:00 Liverpool - PSG (0-2)
19:00 Atletico Madrid - Barcelona (2-0)

   13.04.2026 19:27
Szoboszlai: Breytir öllu að spila á Anfield

Slapp
banner