Michael Carrick stjóri Manchester United segir að miðjumaðurinn Kobbie Mainoo sé að færast nær því að framlengja við félagið.
Mainoo hefur verið í viðræðum um nýjan samning sem er talinn eiga að vera til 2031 og mun færa honum mikla launahækkun.
Mainoo hefur verið í viðræðum um nýjan samning sem er talinn eiga að vera til 2031 og mun færa honum mikla launahækkun.
„Viðræðurnar eru að þróast í rétta átt svo við erum jákvæðir," segir Carrick.
Tækifæri Mainoo voru af skornum skammti þegar Rúben Amorim stýrði United og þá virtist Mainoo vera á leið frá félaginu en staða hans gjörbreyttist eftir að Carrick tók við sem bráðabirgðastjóri.


