Á meðal leikmanna sem Arsenal er tilbúið að á hlusta á tilboð í þetta sumarið eru Myles Lewis-Skelly og Ethan Nwaneri, sem báðir hafa komið í gegnum akademíu félagsins.
Nwaneri hefur vakið áhuga Borussia Dortmund, sem hefur lengi haft gott orð á sér fyrir að þróa efnilega enska leikmenn. Þá fylgjast einnig nokkur lið í ensku úrvalsdeildinni grannt með stöðu hans.
Lewis-Skelly nýtur sömuleiðis áhuga frá liðum í efri hluta ensku úrvalsdeildarinnar, þar á meðal Manchester United.
Þar sem Nwaneri og Lewis-Skelly komu upp í gegnum akademíu Arsenal, þá myndi sala þeirra teljast „hreinn hagnaður“ í bókhaldi félagsins sem gerir slíka sölu fjárhagslega aðlaðandi.
Heimildir breska ríkisútvarpsins innan Arsenal herma að félagið myndi vilja fá að minnsta kosti 100 milljónir punda samanlagt fyrir leikmennina tvo.



