Levante 1 - 0 Getafe
0-0 Adrian De La Fuente ('61 , Misnotað víti)
1-0 Carlos Espi ('83 )
1-0 Ivan Romero ('92, Misnotað víti)
Rautt spjald: Zaid Romero, Getafe ('91)
0-0 Adrian De La Fuente ('61 , Misnotað víti)
1-0 Carlos Espi ('83 )
1-0 Ivan Romero ('92, Misnotað víti)
Rautt spjald: Zaid Romero, Getafe ('91)
Levante er enn á lífi í fallbaráttu spænsku deildarinnar eftir sigur á heimavelli gegn Getafe í kvöld. Levante leit út fyrir að vera á leið niður um deild þar til fyrir nokkrum vikum síðan, en liðið er aðeins búið að tapa einum leik af síðustu sex í deildinni.
Carlos Espí er að reynast hetjan hjá Levante þar sem hann skoraði eina mark leiksins í kvöld og er þar með búinn að skora 7 mörk af síðustu 9 hjá liðinu.
Levante er aðeins fjórum stigum frá öruggu sæti eftir sigurinn, með 29 stig eftir 31 umferð.
Þetta tap er skellur fyrir Getafe sem er í harðri baráttu um evrópusæti.
Levante var sterkara liðið í dag og verðskuldaði sigurinn. Heimamenn klúðruðu tveimur vítaspyrnum en stóðu þrátt fyrir það uppi sem sigurvegarar.



