Það var svakalegur leikur að klárast í Serie A á Ítalíu þar sem topplið Inter hafði betur gegn Como.
Como tók forystuna í leiknum, Alex Valle skoraði og Nico Paz, sem er einn af mest spennandi leikmönnum heims um þessar mundir, bætti svo við.
Como tók forystuna í leiknum, Alex Valle skoraði og Nico Paz, sem er einn af mest spennandi leikmönnum heims um þessar mundir, bætti svo við.
Como náði hins vegar ekki að halda út fram að leikhléi því Marcus Thuram minnkaði muninn rétt áður en liðin gengu til búningsklefa. Hann var svo búinn að jafna snemma í seinni hálfleiknum og þá var röðin komin að Denzel Dumfries.
Hollenski bakvörðurinn skoraði tvisvar og endurkoma Inter fullkomnuð. Lucas Da Cunha minnkaði muninn fyrir Como af vítapunktinum á 88. mínútu en lengra komust þeir ekki og sigur Inter í sjö marka leik staðreynd.
Inter er á toppnum með níu stiga forskot á Napoli sem er í öðru sæti, titilbaráttan svo gott sem búin. Como er í fimmta sæti, tveimur stigum frá Juventus í fjórða sæti.
Þá vann Bologna 2-0 sigur á Lecce fyrr í kvöld. Þórir Jóhann Helgason var ónotaður varamaður hjá Lecce í leiknum en liðið er í 18. sæti með jafnmörg stig og Cremonese í 17. sæti.
Como 3 - 4 Inter
1-0 Alex Valle ('36 )
2-0 Nico Paz ('45 )
2-1 Marcus Thuram ('45 )
2-2 Marcus Thuram ('49 )
2-3 Denzel Dumfries ('59 )
2-4 Denzel Dumfries ('72 )
3-4 Lucas Da Cunha ('88 , víti)
Bologna 2 - 0 Lecce
1-0 Remo Freuler ('26 )
2-0 Riccardo Orsolini ('90 )


