Heimild: Fotbollskanalen
Daníel Tristan Guðjohnsen hefur verið í takmörkuðu hlutverki hjá Malmö í byrjun tímabils.
Spænski þjálfarinn Miguel Ángel Ramírez tók við liðinu í janúar og hefur Daníel aðeins spilað 94 mínútur undir stjórn Ramírez, þar af 73 mínútur í Evrópudeildarleik gegn Genk.
Spænski þjálfarinn Miguel Ángel Ramírez tók við liðinu í janúar og hefur Daníel aðeins spilað 94 mínútur undir stjórn Ramírez, þar af 73 mínútur í Evrópudeildarleik gegn Genk.
„Byrjunin á tímabilinu er klárlega ekki sú besta. Ég hef ekki spilað mikið, en svona er fótboltinn. Það er samkeppni og maður þarf einfaldlega að berjast. Þetta er bara svona í fótbolta. Við erum í Malmö, stóru félagi þar sem samkeppnin er mikil.“
„Ég myndi ekki segja að ég væri stressaður. Mig langar bara að spila, eins og öllum öðrum. Það er engin pressa,“ segir Daníel að lokum.
Daníel kom ekkert við sögu í leik liðsins gegn GAIS á sunnudaginn var. Hann skoraði fimm mörk og gaf sjö stoðsendingar í 23 leikjum í sænsku úrvalsdeildinni á síðustu leiktíð.


