Tveir leikmenn Bournemouth undir smásjá Man Utd - Bayern vill Gordon frá Newcastle - Villa sýnir Trafford áhuga
   mán 13. apríl 2026 22:30
Ívan Guðjón Baldursson
Bruno vitnaði í Mourinho: Lendi í vandræðum ef ég tjái mig
Mynd: EPA
Bruno Fernandes fyrirliði Manchester United var augljóslega ósáttur með dómgæsluna í tapi liðsins á heimavelli gegn Leeds United í ensku úrvalsdeildinni í kvöld.

Leeds komst í tveggja marka forystu í fyrri hálfleik og fékk Lisandro Martínez að líta beint rautt spjald í síðari hálfleik.

„Við gáfum leikinn frá okkur í fyrri hálfleik, við vorum ekki nægilega ákafir. Við vissum að þeir myndu mæta okkur maður á mann en við vorum ekki nægilega góðir. Við gáfum þeim alltof mikið pláss í fyrri hálfleik en við vorum góðir eftir leikhléð," sagði Bruno.

„Ég ætla ekki að tjá mig um dómara leiksins. Ef ég tjái mig um dómarann þá lendi ég í miklum vandræðum útaf því að reglurnar eru ekki eins fyrir alla. Það sést augljóslega í gulu spjöldunum sem voru gefin en það er best að ég segi ekki meira."

Man Utd er í harðri baráttu um meistaradeildarsæti þegar sex umferðir eru eftir af deildartímabilinu, en þetta var fyrsti leikur liðsins í rúmlega þrjár vikur eftir síðasta landsleikjahlé.

„Við erum ennþá með sömu markmið um að enda í topp fjórum (fimm). Þetta er í okkar höndum, við verðum að vinna næstu leiki.

„Það er skrýtið að taka svona hlé á miðju tímabili en þetta er okkur að kenna fyrir að hafa dottið úr leik í enska bikarnum. Ef við hefðum verið ennþá með í keppninni þá hefðum við spilað um síðustu helgi.

„Núna verðum við að undirbúa okkur andlega og líkamlega fyrir næstu leiki."


   13.04.2026 22:18
Carrick fokillur: Ein versta ákvörðun sem ég hef séð

Slapp
banner
banner