Heimild: Sýn Sport
„Það er mjög svekkjandi sem ég heyri að markið okkar sé löglegt í 1-1. Það er dæmd rangstaða og þeir fara upp og skora 2-0 fljótlega eftir það," sagði Hallgrímur Jónasson, þjálfari KA, eftir 2-3 tapið gegn Stjörnunni í fyrstu umferð Bestu deildarinnar í gær.
KA taldi sig hafa jafnað 1-1 þegar Samuel Kroon skoraði en ranglega var dæmd rangstaða, eins og fjallað var um í Stúkunni á Sýn en atvikið má sjá hér að neðan. Skömmu seinna tvöfaldaði Stjarnan svo forystuna.
Einnig var rætt um atvikið í Innkastinu og menn sammála um að þarna hafi Þórður Arnar Árnason aðstoðardómari gert stór mistök.

Lestu um leikinn: KA 2 - 3 Stjarnan