Einar Tómas er uppalinn hjá Gróttu og hefur einnig leikið með KH, KV og Kríu á sínum ferli. Hann kom aftur í Gróttu fyrir síðasta tímabil og spilaði þá 15 deildarleiki þegar Grótta komst upp úr 2. deildinni.
Hann er vinstri bakvörður sem rataði í fréttirnar í vetur eins og hann nefnir sjálfur í vandræðilegasta augnablikinu. Í dag sýnir Einar á sér hina hliðina.
Hann er vinstri bakvörður sem rataði í fréttirnar í vetur eins og hann nefnir sjálfur í vandræðilegasta augnablikinu. Í dag sýnir Einar á sér hina hliðina.
Fullt nafn: Einar Tómas Sveinbjarnarson
Gælunafn: Er oft kallaður E.T eins og geimveran
Aldur: 26 ára
Hjúskaparstaða: Einhleypur
Hvenær lékstu þinn fyrsta leik með meistaraflokki og er eitthvað minnisstætt úr leiknum: Lék minn fyrsta keppnisleik í meistaraflokki í apríl 2018 á móti Selfossi í bikarnum með Gróttu. Mjög minnisstæður leikur, þar sem ég hnéskelsbrotnaði eftir samstuð við leikmann og spilaði í 50 mínútur með sprungu í hnéskelinni. Mig minnir að þjálfararnir hafi ekki trúað mér þegar ég sagðist vera að drepast í hnénu.
Uppáhalds drykkur: Sykurlaust appelsín
Uppáhalds matsölustaður: Ráðagerði út á Nesi
Uppáhalds tölvuleikur: Verð því miður að segja Rocket League
Áttu hlutabréf eða rafmynt: Nei kem ekki nálægt svoleiðis
Uppáhalds sjónvarpsþáttur: It's always sunny in Philadelphia
Uppáhalds tónlistarmaður: Það er Bubbi Morthens. Svo fær Jóhann Egill shout líka
Uppáhalds hlaðvarp: Steve Dagskrá
Uppáhalds samfélagsmiðill: Grammið
Fyrsta síðan sem þú ferð á þegar þú opnar netið: visir.is
Fyndnasti Íslendingurinn: Fáir fyndnari en Hjörvar Hafliða í gír, sérstaklega þegar hann er með Nablanum
Hvernig hljómar síðasta sms sem þú fékkst: „Hvar ert þú? Ætlaðir þú ekki að skutla mér í fyrramálið?" Mamma eitthvað stressuð
Hvaða liði myndir þú aldrei spila með: Myndi aldrei spila með HK, fótbolti á að vera spilaður úti
Besti leikmaður sem þú hefur mætt: Spilaði á móti Dani Ndi sem á einhverja 50 leiki í La Liga, hann var samt ekkert sérstakur í leiknum. Spurning hvernig hann endaði í 3. deildinni á Íslandi
Besti þjálfarinn sem hefur þjálfað þig: Hef verið mjög heppinn með þjálfara á mínum ómerkilega ferli, en Óskar og Dóri standa upp úr. Ég á þeim mikið að þakka.
Mest óþolandi leikmaður sem þú hefur mætt: Flestir í Þrótti Vogum eru óþolandi inná vellinum, þeir mega eiga þennan titil saman
Hver var fyrirmyndin þín í æsku: Zlatan Ibrahimovic þangað til að hann fór í Man Utd, dauður fyrir mér eftir það
Sætasti sigurinn: Úrslitaleikurinn um að komast upp úr 2. deild í fyrra vs Þrótti Vogum. Það var helvíti sætt
Mestu vonbrigðin: Ætli það sé ekki að meiðast út tímabilið í mínum fyrsta keppnisleik í meistaraflokki
Uppáhalds lið í enska: Liverpool
Ef þú fengir að velja einn leikmann úr öðru íslensku liði í þitt lið: Myndi láta Daða Má Patrek Jóhannsson rífa skóna af hillunni, þvílík mýkt í þessum risastóra manni!
Efnilegasti fótboltamaður/kona landsins: það er Gróttumaðurinn Alexander Rafn Pálmason
Fallegasti fótboltamaðurinn á Íslandi: Ólafur Stefán Ólafsson leikmaður Kríu er eins og prime Brad Pitt
Fallegasta fótboltakonan á Íslandi: Erfitt að velja einhverja eina, þær eru allar fallegar!
Besti fótboltamaðurinn frá upphafi: Leo Messi
Ein regla í fótbolta sem þú myndir breyta: Láta spjalda oftar þjálfara eins og Arteta sem eru aldrei í boðvangnum, illa þreytt
Uppáhalds staður á Íslandi: Seltjarnarneslaug
Segðu okkur frá skemmtilegu atviki sem gerst hefur í leik: Skoraði einu sinni með hægri í 3. flokki, það var skemmtilegt
Ertu með einhverja hjátrú tengda fótbolta: Engin sérstök hjátrú en borða alltaf flatkökur á leikdegi
Fyrir utan fótbolta, fylgist þú með öðrum íþróttum: Fylgist með íslensku körfuna í playoffs, píluna um jólin og handboltanum í janúar
Í hvernig fótboltaskóm spilar þú: Spila í Nike Mercurial Vapors en væri í Adidas x19 ef það væri enn þá verið að framleiða þá. Skandall!
Í hverju varstu/ertu lélegastur í skóla: Þeir sem þekkja mig vel vita að ég er glataður í málfræði
Vandræðalegasta augnablik: Það var frekar vandræðalegt þegar ég þurfti að fara af velli í sjúkrabíl eftir að ég reyndi að tækla Ibrahima Balde í Boganum, var ekkert svona slasaður
Hvaða þremur leikmönnum byðir þú í mat og af hverju: Myndi bjóða Van Dijk, Szoboslai og Alisson á krísufund, hvað er eiginlega að frétta
Bestur/best í klefanum og af hverju: Get hlegið endalaust af Bjögga Stef í klefanum, sá er fyndinn
Hvern í liðinu þínu myndirðu velja til að taka þátt í sjónvarpsþáttaröð: Myndi senda þá bakkabræður Viktor Orra og Halldór Hilmi í Love Ísland, þeir væru frábærir þar
Sturluð staðreynd um sjálfan þig: Tala reiprennandi sænsku
Hvaða samherji hefur komið þér mest á óvart eftir að þú kynntist honum og af hverju: Hélt að Tristan Freyr og Guðmundur Rafn væru boring Garðabæjar brósar, en svo eru þeir bara báðir snillingar
Hverju laugstu síðast: Myndi líklega taka einhvern betri en Daða Má Patrek í Gróttu.
Hvað er leiðinlegast að gera á æfingum: 200 metra hlaup hjá Rúnari eru þreytt
Ef þú fengir eina spurningu til að spyrja hvern sem er: Hver yrði spurningin og hvern myndiru spyrja: Myndi hringja í Jurgen Klopp og grátbiðja hann um að taka við Liverpool aftur
Einhver skilaboð til stuðningsmanna fyrir sumarið: Hvet alla nesbúa til að mæta að Vivaldi völlinn í sumar, þetta verður geggjað tímabil og áfram Grótta!

