Newcastle búið að setja verðmiða á Gordon - Barcola og Diomande orðaðir við Liverpool - Camavinga til Tottenham?
   mán 13. apríl 2026 10:06
Elvar Geir Magnússon
Rooney: Man City með sálrænt forskot gegn Arsenal
Pep Guardiola, stjóri Man City.
Pep Guardiola, stjóri Man City.
Mynd: EPA
Wayne Rooney segir að Manchester City sé með andlegt forskot gegn Arsenal í baráttunni um enska meistaratitilinn.

Arsenal er með sex stiga forystu í baráttunni en City á leik til góða og liðin mætast á Etihad leikvangnum á sunnudaginn.

„City veit hvernig á að vinna titilinn og með stjóra sem kann það. Ég held að City hafi forskot hvað það varðar. Þeir ná að halda sér aðeins yfirvegaðri en leikmenn Arsenal," segir Rooney.

„Það skapast áhyggjur þegar þeir eru ekki að ná að vinna og hugarfarið hefur áhrif á frammistöðu."

Manchester City vann Chelsea 3-0 í gær og náði að nýta sér það að Arsenal tapaði 2-1 gegn Bournemouth á laugardaginn.

„Það verður alvöru titilbaráttuslagur á sunnudaginn og liðið sem vinnur verður líklegast til að verða meistari. Ég tel að jafntefli yrðu góð úrslit fyrir Arsenal og þeir gætu þurft að 'spila ljótan leik' til að ná því," segir Rooney.
Stöðutaflan England Premier league - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Arsenal 36 24 7 5 68 26 +42 79
2 Man City 36 23 8 5 75 32 +43 77
3 Man Utd 36 18 11 7 63 48 +15 65
4 Aston Villa 37 18 8 11 54 48 +6 62
5 Liverpool 37 17 8 12 62 52 +10 59
6 Bournemouth 36 13 16 7 56 52 +4 55
7 Brighton 36 14 11 11 52 42 +10 53
8 Brentford 36 14 9 13 52 49 +3 51
9 Chelsea 36 13 10 13 55 49 +6 49
10 Everton 36 13 10 13 46 46 0 49
11 Fulham 36 14 6 16 44 50 -6 48
12 Sunderland 36 12 12 12 37 46 -9 48
13 Newcastle 36 13 7 16 50 52 -2 46
14 Leeds 36 10 14 12 48 53 -5 44
15 Crystal Palace 36 11 11 14 38 47 -9 44
16 Nott. Forest 36 11 10 15 45 47 -2 43
17 Tottenham 36 9 11 16 46 55 -9 38
18 West Ham 36 9 9 18 42 62 -20 36
19 Burnley 36 4 9 23 37 73 -36 21
20 Wolves 36 3 9 24 25 66 -41 18
Hverjir verða bikarmeistarar?
Slapp
banner
banner