Ugarte efstur á óskalista Newcastle - Skotmark Liverpool og Chelsea kostar 60 milljónir - West Ham og Tottenham vilja miðjumann Barcelona
   mán 13. apríl 2026 14:28
Elvar Geir Magnússon
Barcola með til Liverpool
Bradley Barcola.
Bradley Barcola.
Mynd: EPA
Bradley Barcola er í leikmannahópi Paris St-Germain sem ferðaðist til Liverpool en á morgun munu Frakklandsmeistararnir mæta Englandsmeisturunum í seinni viðureign liðanna í Meistaradeildinni.

PSG er í afbragðsgóðum málum eftir að hafa unnið 2-0 sigur í fyrri leiknum.

Barcola hefur skorað 12 mörk í 38 leikjum fyrir PSG á tímabilinu en hann hefur ekki spilað síðan hann meiddist á ökkla í seinni leiknum gegn Chelsea í 16-liða úrslitunum þann 17. mars.

Barcola, sem er 23 ára, var meðal markaskorara þegar PSG vann seinni leikinn gegn Chelsea 3-0 og var það hans fimmta mark í sex leikjum.


Slapp
banner
banner