Liverpool meðal félaga sem vilja Bowen - Juventus hefur áhuga á Jackson - Ederson orðaður við Man Utd
   sun 12. apríl 2026 21:14
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Spánn: Ein óvæntustu úrslit tímabilsins
Real Oviedo vann heldur betur óvæntan sigur.
Real Oviedo vann heldur betur óvæntan sigur.
Mynd: EPA
Þá eru allir leikir dagsins í spænsku úrvalsdeildinni búnir. Það voru heldur betur óvænt úrslit í leik Celta Vigo og Real Oviedo.

Fyrirfram var búist við sigri Celta, jafnvel þægilegum sigri. Annað kom á daginn og unnu gestirnir stórsigur. Santi Cazorla var ónotaður varamaður hjá Oviedo sem er sex stigum frá öruggu sæti eftir þennan sigur á meðan Celta er að berjast um Evrópusæti.

Vedat Muriqi, sem fór illa með okkur Íslendinga í Þjóðadeildinni í fyrra, skoraði tvisvar þegar Mallorca vann þægilegan sigur á Rayo Vallecano og þá gerði Villarreal góða ferð til Baskalands þar sem þeir tóku þar 1-2 sigur. Villarreal er núna fjórum stigum á undan Atletico Madrid í þriðja sæti deildarinnar.

Osasuna og Betis skildu þá jöfn þar sem Antony og Hector Bellerin fóru af velli í hálfleik hjá Betis. Osasuna er í níunda sæti og Betis er í fimmta sæti.

Mallorca 3 - 0 Rayo Vallecano
1-0 Vedat Muriqi ('36 )
2-0 Vedat Muriqi ('40 )
3-0 Jan Virgili ('65 )

Osasuna 1 - 1 Betis
0-1 Abde Ezzalzouli ('7 )
1-1 Ante Budimir ('40 , víti)

Celta 0 - 3 Oviedo
0-1 Alberto Reina ('4 )
0-2 Federico Vinas ('45 )
0-3 Federico Vinas ('57 )

Athletic 1 - 2 Villarreal
0-1 Sergi Cardona ('26 )
0-2 Alfon Gonzalez ('45 )
1-2 Gorka Guruzeta ('84 )
Stöðutaflan Spánn La Liga - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Barcelona 35 30 1 4 91 31 +60 91
2 Real Madrid 35 24 5 6 70 33 +37 77
3 Villarreal 35 21 6 8 65 40 +25 69
4 Atletico Madrid 36 20 6 10 60 38 +22 66
5 Betis 36 14 15 7 56 44 +12 57
6 Celta 36 13 11 12 51 47 +4 50
7 Getafe 35 13 6 16 28 36 -8 45
8 Real Sociedad 35 11 11 13 54 55 -1 44
9 Athletic 35 13 5 17 40 51 -11 44
10 Vallecano 35 10 13 12 36 42 -6 43
11 Osasuna 36 11 9 16 42 47 -5 42
12 Valencia 35 11 9 15 38 50 -12 42
13 Sevilla 35 11 7 17 43 56 -13 40
14 Elche 36 9 12 15 47 56 -9 39
15 Mallorca 35 10 9 16 43 52 -9 39
16 Espanyol 35 10 9 16 38 53 -15 39
17 Girona 35 9 12 14 37 52 -15 39
18 Levante 36 10 9 17 44 59 -15 39
19 Alaves 35 9 10 16 41 54 -13 37
20 Oviedo 35 6 11 18 26 54 -28 29
Slapp
banner
banner