Newcastle búið að setja verðmiða á Gordon - Barcola og Diomande orðaðir við Liverpool - Camavinga til Tottenham?
   mán 13. apríl 2026 18:05
Ívan Guðjón Baldursson
Tímabilið virðist vera búið hjá Romero
Mynd: EPA
Argentínski miðvörðurinn Cristian Romero verður líklega ekki meira með á tímabilinu eftir að greint var frá því í dag að hann missir af næstu 6-8 vikum vegna meiðsla.

Romero meiddist eftir samstuð við Antonín Kinský í tapi hjá Tottenham gegn Sunderland um helgina. Þetta er mikill skellur fyrir fallbaráttulið Tottenham þar sem Romero er fyrirliði félagsins.

Ef endurhæfingin gengur vel mun miðvörðurinn þó að öllum líkindum fara með Argentínu á HM þar ríkjandi heimsmeistarar hefja titilvörnina í Bandaríkjunum í sumar.

Meiðslavandræði Tottenham virðast engan endi ætla að taka en leikmenn á borð við Yves Bissouma, Dejan Kulusevski og James Maddison eru einnig á meiðslalistanum.

   12.04.2026 17:35
Romero með tárin í augunum er hann yfirgaf völlinn

Stöðutaflan England Premier league - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Arsenal 36 24 7 5 68 26 +42 79
2 Man City 36 23 8 5 75 32 +43 77
3 Man Utd 36 18 11 7 63 48 +15 65
4 Aston Villa 37 18 8 11 54 48 +6 62
5 Liverpool 37 17 8 12 62 52 +10 59
6 Bournemouth 36 13 16 7 56 52 +4 55
7 Brighton 36 14 11 11 52 42 +10 53
8 Brentford 36 14 9 13 52 49 +3 51
9 Chelsea 36 13 10 13 55 49 +6 49
10 Everton 36 13 10 13 46 46 0 49
11 Fulham 36 14 6 16 44 50 -6 48
12 Sunderland 36 12 12 12 37 46 -9 48
13 Newcastle 36 13 7 16 50 52 -2 46
14 Leeds 36 10 14 12 48 53 -5 44
15 Crystal Palace 36 11 11 14 38 47 -9 44
16 Nott. Forest 36 11 10 15 45 47 -2 43
17 Tottenham 36 9 11 16 46 55 -9 38
18 West Ham 36 9 9 18 42 62 -20 36
19 Burnley 36 4 9 23 37 73 -36 21
20 Wolves 36 3 9 24 25 66 -41 18
Slapp
banner
banner