Liverpool og Man Utd vilja Raum - Chelsea og Arsenal eltast við Hall - Verbruggen lítur í kringum sig
   þri 14. apríl 2026 16:30
Elvar Geir Magnússon
Stuðningsmenn Arsenal láta í sér heyra eftir dómaravalið
Það verður stutt að fara fyrir Anthony Taylor að dæma stórleik City og Arsenal.
Það verður stutt að fara fyrir Anthony Taylor að dæma stórleik City og Arsenal.
Mynd: EPA
Anthony Taylor mun dæma titilbaráttuslag Manchester City og Arsenal sem fram fer næsta sunnudag.

Arsenal er með sex stiga forystu í baráttunni en City á leik til góða og liðin mætast á Etihad leikvangnum á sunnudag.

Stuðningsmenn Arsenal hafa lýst yfir pirringi yfir valinu á dómara leiksins á samfélagsmiðlum; Taylor er frá Manchestersvæðinu en heldur með Altrincham.

Taylor hefur dæmt þrjá Arsenal leiki á þessu tímabili; jafnteflisleikina gegn Chelsea og Liverpool og sigurleikinn gegn Fulham.

Taylor hefur dæmt 426 leiki í efstu deild Englands og verður að störfum á HM í sumar.

Gary Beswick og Ian Hussin verða aðstoðardómarar á Etihad, Paul Tierney verður fjórði dómari og John Brooks verður VAR dómari.
Stöðutaflan England Premier league - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Arsenal 32 21 7 4 62 24 +38 70
2 Man City 31 19 7 5 63 28 +35 64
3 Man Utd 32 15 10 7 57 45 +12 55
4 Aston Villa 32 16 7 9 43 38 +5 55
5 Liverpool 32 15 7 10 52 42 +10 52
6 Chelsea 32 13 9 10 53 41 +12 48
7 Brentford 32 13 8 11 48 44 +4 47
8 Everton 32 13 8 11 39 37 +2 47
9 Brighton 32 12 10 10 43 37 +6 46
10 Sunderland 32 12 10 10 33 36 -3 46
11 Bournemouth 32 10 15 7 48 49 -1 45
12 Fulham 32 13 5 14 43 46 -3 44
13 Crystal Palace 31 11 9 11 35 36 -1 42
14 Newcastle 32 12 6 14 45 47 -2 42
15 Leeds 32 8 12 12 39 49 -10 36
16 Nott. Forest 32 8 9 15 32 44 -12 33
17 West Ham 32 8 8 16 40 57 -17 32
18 Tottenham 32 7 9 16 40 51 -11 30
19 Burnley 32 4 8 20 33 63 -30 20
20 Wolves 32 3 8 21 24 58 -34 17
Slapp
banner
banner