Bakvörðurinn Tyrick Mitchell spilaði í gær sinn 200. leik í ensku úrvalsdeildinni þegar Crystal Palace tók á móti Newcastle.
Mitchell hefur leikið alla þessa leiki fyrir eitt félag, Crystal Palace.
Mitchell hefur leikið alla þessa leiki fyrir eitt félag, Crystal Palace.
Með þessum áfanga í gær bætti Mitchell met Wilfried Zaha þar sem hann varð yngsti leikmaður í sögu félagsins til að ná þessum áfanga. Væntanlega skemmtilegt fyrir Mitchell því Zaha er af mörgum talinn besti leikmaður í sögu félagsins.
Mitchell er 26 ára gamall, fæddur í september árið 1999. Hann spilaði sinn fyrsta leik í ensku úrvalsdeildinni 2019/20 tímabilið en í þessum 200 leikjum hefur hann skorað fjögur mörk.


