Liverpool og Man Utd vilja Raum - Chelsea og Arsenal eltast við Hall - Verbruggen lítur í kringum sig
   þri 14. apríl 2026 11:50
Elvar Geir Magnússon
Gary Neville kaupir Youtube rásir Mark Goldbridge
Mynd: EPA
The Overlap, fjölmiðill Gary Neville, hefur keypt Youtube rásir áhrifavaldsins Mark Goldbridge.

The United Stand rás Goldbridge er með 2,26 milljón fylgjenda en þar er fjallað ítarlega um Manchester United og meðal annars hægt að horfa á viðbrögð hans í beinni yfir leikjum.

That's Football er önnur rás sem hann stýrir en hún er með 1,46 milljónir fylgjenda og þar er fjallað um boltann frá víðara sjónarhorni.

The Overlap framleiðir hlaðvarp, myndbandsþætti og samfélagsmiðlaefni.

„Við erum að byggja upp það sem við teljum að muni verða eitt spennandi sjálfstæðasta fótboltasamfélag í heimi," segir Neville.

„The United Stand og That's Football eru tvær af þekktustu fótboltarásunum á YouTube og markmið okkar er að þróa þær í að verða mest aðlaðandi fréttarásir Manchester United og fótboltans á markaðnum.“

Youtube rás The Overlap er með 1,66 milljón fylgjendur en flaggskip þess er þátturinn Stick to Football þar sem Neville spjallar við Roy Keane, Jamie Carragher, Jill Scott og Ian Wright.

Í yfirlýsingu segir að nýir þættir verði kynntir til sögunnar, þar sem fyrrum leikmenn og blaðamenn fara yfir málin og nýr fréttaþáttur fari í loftið sem kallast Daily United.


Slapp
banner
banner