Stjörnum prýtt lið Barcelona heimsækir Atlético Madrid í 8-liða úrslitum Meistaradeildarinnar í kvöld.
Börsungar mæta til leiks tveimur mörkum undir eftir óvænt tap á heimavelli í fyrri leiknum en leikmenn liðsins hafa trú á endurkomu í Madríd. Ungstirnið Lamine Yamal er einn þeirra.
12.04.2026 14:00
Börsungar fullir sjálfstrausts fyrir seinni leikinn
Yamal sat við hlið Hansi Flick á fréttamannafundi Barcelona í gær og svaraði spurningum fyrir stórleikinn.
„Mér líður vel! Vonandi gerir El Cholo (Diego Simeone, þjálfari Atlético) mér greiða og spilar maður-á-mann á morgun. Við erum alls ekki búnir að gefast upp, við elskum þetta félag og ætlum að berjast fyrir merkinu. Við munum leggja allt sem við eigum í sölurnar til að komast í undanúrslitin," sagði Yamal.
„Við þráum að vinna Meistaradeildina, þetta er keppni sem við höfum reynt að vinna í langan tíma. Við þurfum ekki kraftaverk til þess að vinna, við þurfum bara að spila okkar leik. Ég var á vellinum þegar við unnum 6-1 gegn PSG og ég hef oft séð þennan endurkomusigur aftur. Við getum þetta.
„Það eina sem ég get lofað er að ef við verðum slegnir út á morgun þá munum við berjast allt til síðustu sekúndu. Við munum ekki láta eina einustu mínútu í leiknum líða án þess að hlaupa og pressa."
Barcelona vann Meistaradeildina síðast 2015 en það var árið 2017 sem þeir unnu magnaðan 6-1 sigur gegn PSG eftir að hafa tapað fyrri leiknum 4-0 í Frakklandi.
„Við erum með fullt af leikmönnum sem geta haft áhrif í þessum leik, ég er ekki sá eini. Endurkoman gegn Atlético veltur ekki bara á mér, við erum með toppgæða leikmannahóp.
„Ég vona að ég muni ráða úrslitum en það verður að koma í ljós. Ég er hungraður í þennan leik. Það er á svona stundum sem alvöru fótboltamenn stíga upp og sína gæðin sín, þegar pressan er sem mest."
Atlético sló Barcelona úr leik í spænska bikarnum fyrr í vor. Atlético vann 4-0 á heimavelli og því nægði 3-0 sigur Barcelona ekki í seinni leiknum.
06.04.2026 09:30
Ronaldinho hrósar Yamal - „Sér vel um tíuna"




