Ugarte efstur á óskalista Newcastle - Skotmark Liverpool og Chelsea kostar 60 milljónir - West Ham og Tottenham vilja miðjumann Barcelona
   mán 13. apríl 2026 23:00
Ívan Guðjón Baldursson
„Strákarnir gerðu allt til að jafna"
Mynd: EPA
Mynd: EPA
Michael Carrick þjálfari Manchester United var svekktur eftir tap á heimavelli gegn Leeds United í ensku úrvalsdeildinni í kvöld.

Carrick lét Paul Tierney dómara heyra það í viðtali að leikslokum áður en hann snéri sér að frammistöðu liðsins. Carrick er óánægður með slakan fyrri hálfleik sinna manna en er gríðarlega stoltur af viðbrögðunum eftir rautt spjald í síðari hálfleik.

„Strákarnir gerðu allt til að jafna þetta í seinni hálfleiknum. Við vitum að við áttum að gera betur í fyrri hálfleik og það er eitthvað sem við munum skoða gaumgæfilega. Í leikhlénu töluðum við um að skora næsta mark og vinna leikinn, en það er erfiðara þegar maður missir leikmann af velli með rautt spjald," sagði Carrick.

„Við þurfum að læra af þessu tapi en núna fer einbeitingin á næsta leik. Við eigum gríðarlega mikilvæga leiki framundan. Við erum í virkilega sterkri stöðu í baráttunni um meistaradeildarsæti þrátt fyrir svekkjandi kvöld. Við vildum ekki tapa þessum leik og við vildum ekki að dómarinn myndi taka svona lélegar ákvarðanir gegn okkur en við verðum að kyngja þessu og halda áfram á okkar braut."

Carrick var einnig spurður hvort félagið ætli að áfrýja rauða spjaldi Martínez.

„Við þurfum að ræða þetta saman innan félagsins en að mínu mati er þetta slæm ákvörðun hjá dómaranum."

   13.04.2026 22:30
Bruno vitnaði í Mourinho: Lendi í vandræðum ef ég tjái mig

Slapp
banner
banner