Heimild: Chess After Dark
Jóhann Berg Guðmundsson var nálægt því að ganga í raðir Breiðabliks rétt fyrir mót. Það var komið samkomulag um kaup og kjör en leikmaðurinn tók svo ákvörðun um að skrifa ekki undir í Smáranum.
Viktor Unnar Illugason, góðvinur Jóhanns, var gestur í hlaðvarpinu Chess After Dark á dögunum og ræddi hann um ákvörðun Jóa að afþakka samningstilboð Breiðabliks.
Viktor Unnar Illugason, góðvinur Jóhanns, var gestur í hlaðvarpinu Chess After Dark á dögunum og ræddi hann um ákvörðun Jóa að afþakka samningstilboð Breiðabliks.
„Hann, eins og allir Íslendingar, vildi kíkja í pakkann og sjá hvað væri í boði. Hann gerði það og að öllu gríni slepptu held ég að þetta hafi ekki snúist um peninga. Ég veit hvernig þessi samningur leit út, ef mitt lið Breiðablik hafði ekki efni á þessum samning þá þurfa þeir að líta í eigin barm. Því þetta var ekki hár samningur. Ég held að þessi söfnun hafi verið algjört bull. Ef við lítum út um gluggann og sjáum veðurfar síðustu tíu daga þá skilur maður þessa ákvörðun nokkuð vel.“
„Hann var kominn með samningstilboð sem var flottur, því þetta snerist aldrei um peninga. Síðan vildi hann hugsa sig um, ræddi við vini og ættingja. Ég t.d. benti honum að fara ekki í Breiðablik. En hann ætlar að skoða sín mál í sumar og sjá hvað verður í boði. Hvort það verður í Skandinavíu eða annars staðar. Vonandi hættir þetta stríð og hann getur farið heim til sín og spilað í peningunum.“
Ekki búinn að kalla þetta gott
Því næst beindist umræðan að því hvort Besta deildin væri heillandi áfangastaður fyrir leikmenn gullkynslóðarinnar. Kjartan Henry Finnbogason, sem var jafnframt gestur í þættinum, segir skilja leikmenn vel ef deildin heillar ekki.
„Jói hefur afrekað allt sem að hann getur. Hann er búinn að spila í mörg ár í ensku úrvalsdeildinni, búinn að fara á EM og HM og hefur unnið titla í Hollandi sem gleymist oft. Hann hefur ekkert að sanna,“ sagði Viktor. Tilfelli Gylfa Þórs Sigurðssonar var tekið út fyrir sviga þar sem að hann fékk ekki að spila í þrjú ár.
Birkir Karl Sigurðsson, annar þáttastjórnenda, spyr Viktor hvort að Jói sé að fara kalla þetta gott og leggja skóna á hilluna. Svarið var einfalt:
„Nei.“




