Hollenski miðjumaðurinn Georginio Wijnaldum hefur leikið með Al-Ettifaq í Sádi-Arabíu síðastliðin þrjú ár. Hann er algjör lykilmaður í byrjunarliðinu og fyrirliði félagsins.
Samningur hans rennur út í sumar og verður Wijnaldum þá frjáls ferða sinna en hann er 35 ára gamall.
Sky Sports greinir frá því að Wijnaldum vilji snúa aftur í ensku úrvalsdeildina þegar samningurinn rennur út í Sádi-Arabíu.
Wijnaldum var á sínum tíma mikilvægur hlekkur í liði Liverpool en hann hefur einnig leikið fyrir PSG, Roma, Newcastle United, PSV Eindhoven og Feyenoord á ferlinum.
Wijnaldum hefur ekki í hyggju að leggja skóna á hilluna þrátt fyrir hækkandi aldur enda er hann búinn að skora 15 mörk og gefa 6 stoðsendingar í 28 leikjum á tímabilinu.
Hollendingurinn er ekki búinn að taka ákvörðun varðandi framtíð sína en ef honum berst tilboð úr úrvalsdeildinni mun það fá forgang framyfir önnur tilboð.



