Liverpool og Man Utd vilja Raum - Chelsea og Arsenal eltast við Hall - Verbruggen lítur í kringum sig
   þri 14. apríl 2026 10:00
Ívan Guðjón Baldursson
Brobbey varð fyrir kynþáttaníði
Mynd: Premier League
Mynd: Reuters
Sunderland hefur fordæmt kynþáttaníð í garð framherja síns Brian Brobbey eftir 1-0 sigur gegn Tottenham í ensku úrvalsdeildinni um helgina.

Einhverjir áhagendur Tottenham voru æfareiðir út í Brobbey eftir að hann ýtti í Cristian Romero þegar leikmennirnir voru á harðaspretti á eftir boltanum. Romero datt beint á Antonín Kinský markvörð og meiddist nokkuð illa í leiðinni.

Þá fékk Brobbey gult spjald í leiknum fyrir að fara með handlegginn í andlitið á Pedro Porro, en um óviljaverk var að ræða og ekki raunverulegt olnbogaskot.

Fyrirliði Tottenham verður líklegast frá keppni út tímabilið eftir atvikið á meðan Kinský fékk sár á hausinn en kláraði leikinn.

Kynþáttafordómamál eru að aukast í enska boltanum en þau eiga sér í langflestum tilfellum stað í einkaskilaboðum eða ummælakerfum á samfélagsmiðlum.

Enska úrvalsdeildin hefur einnig fordæmt atvikið og er málið til rannsóknar hjá lögreglu ásamt mörgum öðrum fordómamálum sem hafa sprottið upp á leiktíðinni.
Slapp
banner
banner