Manuel Ugarte er efstur á óskalista Newcastle, Liverpool og Chelsea berjast um Eli Junior Kroupi og Tottenham og West Ham hafa áhuga á að sækja miðjumann Barcelona. Þetta og fleira í slúðurpakka dagsins sem er í boði Powerade.
Newcastle vill styrkja miðjuna og hefur augastað á miðjumanni Manchester United, Manuel Ugarte (25), sem er sagður efstur á óskalista félagsins. (Football Insider)
Tottenham og West Ham hafa bæði áhuga á að fá til sín miðjumann Barcelona, Marc Casado (22). (Tuttomercato)
Liverpool og Chelsea eru sögð berjast um sóknarmann Bournemouth, Eli Junior Kroupi (19), en félagið er tilbúið að selja hann fyrir um 60 milljónir punda. (Caught Offside)
Coventry vill festa kaup á markverðinum Carl Rushworth (24), eftir að hafa haft hann á láni frá Brighton. Leeds hefur einnig áhuga á leikmanninum. (Teamtalk)
Framherji Leeds, Joel Piroe (26), gæti yfirgefið félagið í sumar vegna takmarkaðs spilatíma. Rangers er líklegur áfangastaður. (Football Insider)
Manchester United undirbýr tilboð í Jeremy Monga (16), ungstirni Leicester. Manchester City og Arsenal hafa jafnframt áhuga á táningnum. (Teamtalk)
Fulham skoðar möguleikann á að semja við miðjumann Bayer Leverkusen, Malik Tillman (23), þar sem félagið undirbýr sig fyrir brotthvarf Harry Wilson sem verður samningslaus í sumar. (Daily Mail)



