Newcastle búið að setja verðmiða á Gordon - Barcola og Diomande orðaðir við Liverpool - Camavinga til Tottenham?
   mán 13. apríl 2026 18:17
Ívan Guðjón Baldursson
Byrjunarlið Man Utd og Leeds: Sesko leiðir framlínuna
Mynd: EPA
Mynd: EPA
Mynd: EPA
Michael Carrick og Daniel Farke, þjálfarar Manchester og Leeds United, gera fjórar breytingar á byrjunarliðum sínum á milli leikja.

Man Utd hefur ekki spilað fótboltaleik síðan 20. mars og kemur Lisandro Martínez inn í varnarlínuna fyrir Harry Maguire sem er í leikbanni. Það er talsverður hæðarmunur á miðvörðunum og verður áhugavert að sjá hvort það muni hafa áhrif á varnarleik liðsins gegn Dominic Calvert-Lewin sem er öflugur í loftinu.

Noussair Mazraoui kemur þá inn í hægri bakvarðarstöðuna fyrir Diogo Dalot og er Kobbie Mainoo ekki í hóp vegna smávægilegra meiðsla.

Manuel Ugarte tekur stöðu Mainoo á miðjunni á meðan Benjamin Sesko fær tækifæri í fremstu víglínu í stað Bryan Mbeumo sem sest á bekkinn.

Man Utd gerði jafntefli við Bournemouth fyrir landsleikjahléð en það er talsvert styttra síðan Leeds spilaði keppnisleik. Lærlingar Farke slógu West Ham úr leik í 8-liða úrslitum enska bikarsins síðustu helgi.

Farke gerir fjórar breytingar eftir sigur í vítaspyrnukeppni gegn West Ham, þar sem Karl Darlow kemur inn á milli stanganna fyrir Lucas Perri og taka Gabriel Gudmundsson og Brenden Aaronson sæti í byrjunarliðinu.

Calvert-Lewin var hvíldur stærsta hluta leiksins um síðustu helgi og byrjar í kvöld.

Joe Rodon, Anton Stach og Lukas Nmecha detta úr liðinu.

Man Utd: Lammens, Mazraoui, Martinez, Yoro, Shaw, Ugarte, Casemiro, Fernandes, Cunha, Amad, Sesko.
Varamenn: Bayindir, Dalot, Mount, Zirkzee, Malacia, Mbeumo, Heaven, Fletcher, Lacey.

Leeds: Darlow, Bogle, Bijol, Struijk, Gudmundsson, Justin, Ampadu, Tanaka, Aaronson, Calvert-Lewin, Okafor.
Varamenn: Perri, Longstaff, Piroe, Nmecha, Bornauw, Byram, Gnonto, Buonanotte, Gruev.
Stöðutaflan England Premier league - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Arsenal 36 24 7 5 68 26 +42 79
2 Man City 36 23 8 5 75 32 +43 77
3 Man Utd 36 18 11 7 63 48 +15 65
4 Aston Villa 37 18 8 11 54 48 +6 62
5 Liverpool 37 17 8 12 62 52 +10 59
6 Bournemouth 36 13 16 7 56 52 +4 55
7 Brighton 36 14 11 11 52 42 +10 53
8 Brentford 36 14 9 13 52 49 +3 51
9 Chelsea 36 13 10 13 55 49 +6 49
10 Everton 36 13 10 13 46 46 0 49
11 Fulham 36 14 6 16 44 50 -6 48
12 Sunderland 36 12 12 12 37 46 -9 48
13 Newcastle 36 13 7 16 50 52 -2 46
14 Leeds 36 10 14 12 48 53 -5 44
15 Crystal Palace 36 11 11 14 38 47 -9 44
16 Nott. Forest 36 11 10 15 45 47 -2 43
17 Tottenham 36 9 11 16 46 55 -9 38
18 West Ham 36 9 9 18 42 62 -20 36
19 Burnley 36 4 9 23 37 73 -36 21
20 Wolves 36 3 9 24 25 66 -41 18
Slapp
banner
banner
banner