Liverpool og Man Utd vilja Raum - Chelsea og Arsenal eltast við Hall - Verbruggen lítur í kringum sig
   þri 14. apríl 2026 08:00
Ívan Guðjón Baldursson
Gagnrýndur fyrir liðsvalið: „Vel ekki eftir kaupverði"
Mynd: EPA
Mynd: EPA
Eddie Howe þjálfari Newcastle United hefur legið undir gagnrýni í enskum fjölmiðlum vegna slæms gengis undanfarnar vikur.

Newcastle tapaði gegn Crystal Palace um helgina og var það þriðji tapleikur liðsins í röð. Lærlingar Howe hafa einungis unnið þrjá leiki af síðustu tíu í öllum keppnum.

   13.04.2026 11:00
Howe lítur í eigin barm: Loka ekki augunum


Eftir tapið gegn Palace var Howe spurður út í valið sitt á byrjunarliðinu, þar sem framherjarnir Nick Woltemade og Yoane Wissa byrjuðu báðir á bekknum. Þeir kostuðu væna fúlgu fjárs þegar Newcastle keypti þá í fyrrasumar til að fylla í skarðið fyrir Alexander Isak.

Daninn efnilegi William Osula byrjaði þess í stað í fremstu víglínu og skoraði eina mark fyrri hálfleiksins. Woltemade og Wissa fengu ekki að spreyta sig fyrr en á síðustu mínútum leiksins.

„Ég vel ekki í byrjunarliðið eftir því hvað leikmenn kostuðu. Ég verð að velja leikmennina sem eiga skilið að spila og sem ég tel að geti gefið okkur bestu möguleikana til að sigra. Osula var búinn að æfa mjög vel og mér fannst hann standa sig vel í leiknum," sagði Howe sem gerði sex breytingar á byrjunarliðinu á milli leikja.

„Hann var einn af björtu punktunum við þennan leik hjá okkur. Hann hefur líkamsburðina og metnaðinn til að gera góða hluti. Hann er að bæta sinn leik í hverri viku og ég er mjög ánægður með hann."
Stöðutaflan England Premier league - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Arsenal 32 21 7 4 62 24 +38 70
2 Man City 31 19 7 5 63 28 +35 64
3 Man Utd 32 15 10 7 57 45 +12 55
4 Aston Villa 32 16 7 9 43 38 +5 55
5 Liverpool 32 15 7 10 52 42 +10 52
6 Chelsea 32 13 9 10 53 41 +12 48
7 Brentford 32 13 8 11 48 44 +4 47
8 Everton 32 13 8 11 39 37 +2 47
9 Brighton 32 12 10 10 43 37 +6 46
10 Sunderland 32 12 10 10 33 36 -3 46
11 Bournemouth 32 10 15 7 48 49 -1 45
12 Fulham 32 13 5 14 43 46 -3 44
13 Crystal Palace 31 11 9 11 35 36 -1 42
14 Newcastle 32 12 6 14 45 47 -2 42
15 Leeds 32 8 12 12 39 49 -10 36
16 Nott. Forest 32 8 9 15 32 44 -12 33
17 West Ham 32 8 8 16 40 57 -17 32
18 Tottenham 32 7 9 16 40 51 -11 30
19 Burnley 32 4 8 20 33 63 -30 20
20 Wolves 32 3 8 21 24 58 -34 17
Slapp
banner