Ugarte efstur á óskalista Newcastle - Skotmark Liverpool og Chelsea kostar 60 milljónir - West Ham og Tottenham vilja miðjumann Barcelona
   mán 13. apríl 2026 23:59
Ívan Guðjón Baldursson
Lengjubikarinn: Átta marka jafntefli í Mosfellsbæ
Vængir Júpíters unnu úrslitaleikinn um 2. sætið
Mynd: Helgi Þór Gunnarsson
Mynd: Fótbolti.net - Eyjólfur Garðarsson
Það fóru tveir leikir fram í Lengjubikarnum í kvöld þar sem Hvíti riddarinn tók á móti KH í miklum markaleik í B-deildinni.

KH tók forystuna tvisvar í fyrri hálfleik og í seinna skiptið var það Haukur Ásberg Hilmarsson sem skoraði á 24. mínútu. Þremur mínútum síðar fékk hann beint rautt spjald.

Tíu leikmenn KH leiddu 1-2 í leikhlé en heimamenn snéru stöðunni við í Mosfellsbæ með tveimur mörkum í upphafi síðari hálfleiks. Patrekur Orri Guðjónsson skoraði tvennu fyrir Hvíta riddarann og virtist Bjarki Már Ágústsson gera út um viðureignina á 69. mínútu þegar hann breytti stöðunni í 4-2.

Það átti þó mikið eftir að gerast útaf því að Ástþór Ingi Runólfsson var rekinn af velli með seinna gula spjaldið sitt í liði heimamanna og því jafnt í liðum á lokakaflanum.

Það nýttu gestirnir sér og náðu að jafna metin með tveimur mörkum á lokakaflanum, lokatölur 4-4. Sigfús Kjalar Árnason skoraði annað markanna og endaði því leikinn með tvennu.

Liðin enda jöfn með 5 stig eftir 5 umferðir í Lengjubikarnum í ár.

Þá var einn leikur á dagskrá í C-deildinni. BF 108 náði forystunni á útivelli gegn Vængjum Júpíters en Arnar Ragnars Guðjohnsen svaraði með tvennu og urðu lokatölur 3-1 fyrir heimamenn.

Vængir Júpíters enda í 2. sæti riðilsins þökk sé þessum sigri og lýkur Boltafélagið keppni í 3. sæti. Liðin eru jöfn á stigum en Vængirnir unnu innbyrðisviðureignina og eru með betri markatölu.

Hvíti riddarinn 4 - 4 KH
0-1 Sigfús Kjalar Árnason ('11 )
1-1 Patrekur Orri Guðjónsson ('18 )
1-2 Haukur Ásberg Hilmarsson ('24 )
2-2 Patrekur Orri Guðjónsson ('50 )
3-2 Óðinn Breki Þorvaldsson ('52 )
4-2 Bjarki Már Ágústsson ('69 )
4-3 Sigfús Kjalar Árnason ('82 )
4-4 Luis Carlos Cabrera Solys ('86)
Rautt spjald: Haukur Ástberg Hilmarsson, KH ('27)
Rautt spjald: Ástþór Ingi Runólfsson, Hvíti ('78)

Vængir Júpiters 3 - 1 BF 108
0-1 Elías Muni Eyvindsson ('20 )
1-1 Arnar Ragnars Guðjohnsen ('35 )
2-1 Arnar Ragnars Guðjohnsen ('55 )
3-1 Aron Heimisson ('91 )
Slapp
banner
banner