Manchester United er eitt af þeim félögum sem hafa áhuga á að fá Jeremy Monga, kantmann Leicester City, samkvæmt frétt TEAMtalk.
United þarf þó að kljást við harða samkeppni um undirskrift leikmannsins.
United þarf þó að kljást við harða samkeppni um undirskrift leikmannsins.
Leicester City stendur frammi fyrir mögulegu falli niður í League One og gæti því misst nokkra lykilmenn í sumar.
Monga er á radar hjá fjölmörgum félögum, þar á meðal Juventus, Real Madrid og Borussia Dortmund, auk nokkurra liða í ensku úrvalsdeildinni.
Talið er að Man Utd hyggist leggja fram formlegt tilboð í sumar, en Monga hefur enn ekki skrifað undir atvinnumannasamning þar sem hann er aðeins 16 ára gamall.
Hann hefur á þessu tímabili spilað 20 leiki með aðalliði Leicester þrátt fyrir ungan aldur.

