Liverpool gefst ekki upp á Isak - Newcastle vill Rashford - Gyökeres neitar að ræða við Sporting
   fim 19. júní 2025 22:28
Elvar Geir Magnússon
Heimild: RÚV 
Höddi Magg: Eyjamenn eru bara rændir
Úr leik ÍBV og Vals í kvöld.
Úr leik ÍBV og Vals í kvöld.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Twana Khalid Ahmed.
Twana Khalid Ahmed.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Hörður Magnússon sérfræðingur RÚV segir alveg ljóst að ÍBV hafi átt að fá vítaspyrnu í bikarleiknum gegn Val. Hann skilur pirringinn í Eyjamönnum eftir leik.

Þorlákur Árnason þjálfari ÍBV vill meina að dómgæsla Twana Khalid Ahmed hafi hallað á sitt lið og Hörður segir hann hafa ýmislegt til síns máls.

Leikurinn endaði 0-1, Val í hag, en þegar 20 mínútur voru eftir vildu Eyjamenn fá vítaspyrnu þegar boltinn fór í hendina á Bjarna Mark Duffield í teignum.

Lestu um leikinn: ÍBV 0 -  1 Valur

„Eyjamenn eru bara rændir. Það er óskiljanlegt að dómarinn hafi ekki séð þetta eða aðstoðarmenn hans. Bjarni er í miklum vandræðum, er illa staðsettur og notar höndina til að hemja boltann. Mér finnst vanhæfni að hafa ekki séð þetta," segir Hörður í bikarþættinum á RÚV.

„Þessi leikur hefði mögulega farið í framlengingu og mér fannst Eyjaliðið heilt yfir sterkara í leiknum," bætir Hörður við og er sammála því að honum fannst ekki mikið samræmi í ákvörðunum Twana dómara.

Með sigrinum komst Valur í undanúrslit Mjólkurbikarsins en dregið verður rétt á eftir.
Athugasemdir
banner
banner