Man Utd og Chelsea hafa áhuga á Adeyemi - Real Madrid horfir til Gvardiol - Liverpool vill Dumfries
banner
   þri 19. maí 2026 13:32
Elvar Geir Magnússon
Chelsea mun krefjast bóta fyrir Maresca
Enzo Maresca.
Enzo Maresca.
Mynd: EPA
Chelsea mun krefjast þess að fá bætur frá Manchester City ef félagið ræður Enzo Maresca.

Sögusagnir hafa verið í gangi um að City hafi rætt við Maresca á meðan hann var stjóri Chelsea.

Maresca lét af störfum hjá Chelsea á miðju tímabili og ef félagið nær ekki samkomulagi við City um bætur gæti það kvartað til ensku úrvalsdeildarinnar sem myndi setja af stað rannsókn.

Pep Guardiola hefur tilkynnt leikmönnum Manchester City að hann muni hætta hjá félaginu eftir lokaumferðina á sunnudag, þegar City mætir Aston Villa.


Guardiola hefur verið hjá City í áratug en hans fyrrum aðstoðarmaður, Maresca, mun að öllum líkindum taka við City. City ku vera búið að gera samkomulag við Maresca um þriggja ára samning en það þarf að ganga frá málum við Chelsea.
Stöðutaflan England Premier league - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Arsenal 37 25 7 5 69 26 +43 82
2 Man City 36 23 8 5 75 32 +43 77
3 Man Utd 37 19 11 7 66 50 +16 68
4 Aston Villa 37 18 8 11 54 48 +6 62
5 Liverpool 37 17 8 12 62 52 +10 59
6 Bournemouth 36 13 16 7 56 52 +4 55
7 Brighton 37 14 11 12 52 43 +9 53
8 Brentford 37 14 10 13 54 51 +3 52
9 Sunderland 37 13 12 12 40 47 -7 51
10 Chelsea 36 13 10 13 55 49 +6 49
11 Newcastle 37 14 7 16 53 53 0 49
12 Everton 37 13 10 14 47 49 -2 49
13 Fulham 37 14 7 16 45 51 -6 49
14 Leeds 37 11 14 12 49 53 -4 47
15 Crystal Palace 37 11 12 14 40 49 -9 45
16 Nott. Forest 37 11 10 16 47 50 -3 43
17 Tottenham 36 9 11 16 46 55 -9 38
18 West Ham 37 9 9 19 43 65 -22 36
19 Burnley 37 4 9 24 37 74 -37 21
20 Wolves 37 3 10 24 26 67 -41 19
Slapp
banner
banner