Síðustu leikirnir í riðlakeppni HM félagsliða fara fram í kvöld og eftir miðnætti.
Juventus og Manchester City berjast um toppsæti G-riðils klukkan 19:00.
Bæði lið eru með 6 stig og er þetta því hreinn úrslitaleikur um efsta sætið. Í sama riðli mætast Wydad Casablanca og Al Ain.
Klukkan 01:00 í nótt eru síðustu leikirnir í riðlakeppninni. Al Hilal spilar við Pachuca á meðan Salzburg spilar við Real Madrid í úrslitaleiknum um toppsætið í H-riðli. Bæði lið eru með 4 stig en Al Hilal er í þriðja sæti með 2 stig og á því enn möguleika á að komast áfram.
Leikir dagsins:
19:00 Juventus - Man City
19:00 WAC Casablanca - Al Ain
01:00 Al Hilal Riyadh - Pachuca
01:00 Salzburg - Real Madrid
Athugasemdir