Sádar búast við því að Salah fari frá Liverpool í sumar - Vicario á blaði hjá Inter - Palace hefur rætt við Úlfana um Strand Larsen
   sun 14. desember 2025 05:55
Ívan Guðjón Baldursson
Spánn í dag - Skyldusigur fyrir Real Madrid
Mynd: EPA
Mynd: EPA
Sevilla byrjar daginn í spænska boltanum á heimavelli gegn Real Oviedo.

Sevilla er tveimur stigum frá fallsvæðinu en sjö stigum fyrir ofan Oviedo sem hefur átt mjög slakan fyrri hluta tímabils.

Næsti leikur fer fram í Vigo þar sem Celta fær Athletic Bilbao í heimsókn, en það eru fjögur stig sem skilja liðin að á stöðutöflunni. Athletic er einu stigi frá Evrópusæti, með 23 stig eftir 16 umferðir.

Botnlið Levante tekur svo á móti Villarreal sem er í toppbaráttu og getur komist uppfyrir Real Madrid með sigri, áður en Madrídingar mæta sjálfir til leiks.

Lærisveinar Xabi Alonso heimsækja Alavés og þurfa á sigri að halda eftir slakt gengi undanfarna vikna. Real er sjö stigum á eftir toppliði Barcelona og með leik til góða.

Einhverjir fjölmiðlar á Spáni telja starf Alonso við stjórnvölinn hjá Real vera í hættu ef lærlingar hans leggja Alavés ekki að velli.

Leikir dagsins
13:00 Sevilla - Real Oviedo
15:15 Celta Vigo - Athletic Bilbao
17:30 Levante - Villarreal
20:00 Alaves - Real Madrid
Stöðutaflan Spánn La Liga - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Barcelona 20 16 1 3 54 22 +32 49
2 Real Madrid 20 15 3 2 43 17 +26 48
3 Villarreal 19 13 2 4 37 19 +18 41
4 Atletico Madrid 20 12 5 3 35 17 +18 41
5 Espanyol 20 10 4 6 23 22 +1 34
6 Betis 20 8 8 4 33 25 +8 32
7 Celta 20 8 8 4 28 20 +8 32
8 Elche 20 5 9 6 27 26 +1 24
9 Real Sociedad 20 6 6 8 26 28 -2 24
10 Athletic 20 7 3 10 19 28 -9 24
11 Girona 20 6 6 8 20 34 -14 24
12 Osasuna 20 6 4 10 21 24 -3 22
13 Vallecano 20 5 7 8 16 25 -9 22
14 Sevilla 20 6 3 11 26 32 -6 21
15 Mallorca 20 5 6 9 24 30 -6 21
16 Getafe 20 6 3 11 15 26 -11 21
17 Valencia 20 4 8 8 19 31 -12 20
18 Alaves 20 5 4 11 16 25 -9 19
19 Levante 19 3 5 11 21 32 -11 14
20 Oviedo 20 2 7 11 11 31 -20 13
Athugasemdir