Þrír á förum frá Man City - Dalot orðaður við Real Madrid - Framherji West Ham til Milan?
   sun 14. desember 2025 19:32
Jóhann Þór Hólmgrímsson
„Get rétt ímyndað mér hvað strákarnir hjá Liverpool eru að ganga í gegnum"
Mynd: EPA
Jordan Henderson, leikmaður Brentford, skoraði sitt fyrsta mark fyrir liðið í 1-1 jafntefli gegn Leeds í dag. Hann tileinkaði Diogo Jota markið sem lést í bílslysi síðasta sumar.

Henderson kom Brentford yfir og fagnaði með því að setjast niður og þykjast leika sér í PlayStation. Það var fagn sem Jota var þekktur fyrir.

Henderson og Jota spiluðu saman hjá Liverpool frá 2020-2023.

„Hann átti afmæli á dögunum. Við munum aldrei gleyma honum. Ég get rétt ímyndað mér hvað strákarnir hjá Liverpool eru að ganga í gegnum. Hann var góður vinur og ég skora ekki oft svo ég hugsaði mér að tileinka honum markið," sagði Henderson.


Athugasemdir