Chelsea og Man Utd berjast um miðjumann - Palace vill leikmann Bayern og Brennan Johnson
banner
   lau 13. desember 2025 16:03
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Bose-bikarinn: ÍA setti fimm gegn Fylki
Mynd: BerndsenPhoto
ÍA 5-0 Fylkir
Mörk ÍA: Gísli Laxdal Unnarsson x2, Ómar Björn Stefánsson, Jón Gísli Eyland Gíslason, Viktor Gaciarski

ÍA fékk Fylki í heimsókn í Akraneshöllina í Bose-bikarnum í dag.

ÍA var með örugga 4-0 forystu í hálfleik og liðið bætti einu marki við í seinni hálfleik og vann því að lokum 5-0.

Gísli Laxdal Unnarsson skoraði tvennu, Ómar Björn Stefánsson, Jón Gísli Eyland Gíslason og Viktor Gaciarski skoruðu sitt markið hver.

Þetta var annar leikur ÍA en liðið tapaði gegn Víkingi í fyrstu umferð. Þetta var hins vegar fyrsti leikur Fylkis. Fylkir og Víkingur mætast í lokaleik riðilsins um næstu helgi.
Athugasemdir
banner
banner
banner