Chelsea bætist í kapphlaupið um Nunez - City tilbúið að borga 70 milljónir fyrir Livramento - Liverpool og Real Madrid slást um Schlotterbeck
   lau 13. desember 2025 14:37
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Championship: Stefán Teitur kom inná í góðum sigri
Mynd: Preston North End FC
Stefán Teitur Þórðarson kom inn á sem varamaður þegar Preston lagði Oxford United í Championship deildinni í dag.

Oxford var með yfirhöndina en Jordan Storey sá til þess að Preston var með forystuna í hálfleik. Daniel Jebbison bætti öðru markinu við snemma í seinni hálfleik og Brian De Keersmaecker minnkaði muninn stuttu seinna en nær komst Oxford ekki.

Stefán Teitur kom inn á í blálokin. Preston er í 3. sæti deildarinnar með 35 stig, fjórum stigum á eftir Middlesbrough sem á leik til góða gegn QPR á eftir. Oxford er í 21. sætii með 19 stig.

Norwich vann frábæran sigur gegn Southampton sem hafði unnið sex af síðustu sjö leikjum sínum. Norwich er í 22. sæti með 17 stig en Southampton er í 9. sæti með 30 stig.

Stoke er í 6. sætii með 33 stig eftir sigur gegn Swansea sem er í 19. sæti með 23 stig.

Stoke City 2 - 1 Swansea
1-0 Ben Pearson ('42 )
2-0 Sorba Thomas ('60 )
2-1 Zan Vipotnik ('77 )

Oxford United 1 - 2 Preston NE
0-1 Jordan Storey ('26 )
0-2 Daniel Jebbison ('49 )
1-2 Brian De Keersmaecker ('53 )

Norwich 2 - 1 Southampton
0-0 Adam Armstrong ('27 , Misnotað víti)
1-0 Jovon Makama ('48 )
1-1 Ryan Manning ('57 )
2-1 Jovon Makama ('61 )
Stöðutaflan England Championship - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Coventry 35 21 8 6 72 38 +34 71
2 Middlesbrough 35 19 9 7 54 35 +19 66
3 Millwall 35 18 8 9 47 40 +7 62
4 Ipswich Town 33 17 9 7 59 34 +25 60
5 Hull City 34 18 6 10 56 48 +8 60
6 Wrexham 35 15 12 8 54 45 +9 57
7 Southampton 35 14 11 10 57 46 +11 53
8 Derby County 35 14 9 12 52 46 +6 51
9 Watford 35 13 12 10 45 41 +4 51
10 Bristol City 35 14 8 13 48 44 +4 50
11 Preston NE 35 12 13 10 41 40 +1 49
12 Birmingham 35 13 10 12 46 46 0 49
13 Sheffield Utd 35 15 3 17 50 48 +2 48
14 Stoke City 35 13 8 14 39 34 +5 47
15 QPR 35 13 8 14 46 54 -8 47
16 Swansea 35 13 7 15 40 43 -3 46
17 Norwich 35 13 6 16 47 44 +3 45
18 Charlton Athletic 35 10 11 14 33 44 -11 41
19 Portsmouth 34 10 9 15 34 44 -10 39
20 Blackburn 35 10 8 17 33 46 -13 38
21 West Brom 35 9 8 18 34 52 -18 35
22 Leicester 35 10 10 15 47 56 -9 34
23 Oxford United 35 7 11 17 31 47 -16 32
24 Sheff Wed 35 1 8 26 21 71 -50 -7
Athugasemdir
banner