Fabian O'Neill er látinn, aðeins 49 ára að aldri. Þessi leikmaður lék sem miðjumaður í ítalska boltanum þar sem hann var lykilmaður hjá Cagliari í fjögur ár áður en hann var fenginn yfir til Juventus.
O'Neill var ótrúlega hæfileikaríkur leikmaður og hefði getað orðið einn af bestu miðjumönnum ítalska boltans en alkóhólismi og spilafíkn náðu tökum á lífi hans snemma.
Eftir að hafa verið lykilmaður hjá Cagliari fór áfengis- og spilafíknin að taka sinn toll. Stjórnendur Juve vissu ekki af fíknivandamálum þegar leikmaðurinn var fenginn til félagsins en það komst fljótt upp um hann.
O'Neill spilaði aðeins nokkra leiki fyrir Juve þegar hann var 27 og 28 ára gamall en hann var búinn að leggja fótboltaskóna á hilluna tveimur árum síðar vegna áfengisfíknarinnar. Tuttugu árum síðar er O'Neill látinn á jóladag.
O'Neill var lagður inn á spítala á aðfangadag þar sem hann var í dái vegna krónísks lifrarsjúkdóms, sem er áunninn vegna alkóhólismans.
O'Neill fæddist í Úrúgvæ og lék 19 landsleiki fyrir þjóð sína. Hann fór á HM 2002 í Suður-Kóreu og Japan en fékk ekki að spreyta sig.
O'Neill skilur eftir sig tvær dætur og einn son sem hann eignaðist með þremur mismunandi mæðrum. Sonur hans Favio O'Neill leikur sem miðjumaður fyrir U19 ára lið Penarol í heimalandinu. Þá er önnur dætra hans efnilegur bandý-leikmaður.
O'Neill gaf út sjálfsævisögu 2013 og í júní 2016 þurfti hann að fara í aðgerð á gallblöðru. Læknar sögðu honum að drekka ekki áfengi í þrjú ár en honum tókst ekki að halda sér edrú í lengur en einn mánuð.
2017 viðurkenndi hann að vera orðinn fátækur en sagðist ekki sjá eftir því. Hann sagðist hafa eitt 14 milljónum bandaríkjadollara í 'hæga hesta, hraðar konur og spil'. Í sjálfsævisögu sinni kom hann meðal annars inná það þegar hann mætti fullur á sveitauppboð og eyddi 250 þúsund dollurum til að kaupa sér 1104 kýr.
Í júní 2020 var O'Neill sendur á spítala með skorpulifur. Þar var honum ráðlagt að sleppa því að drekka áfengi í eitt ár - því þá gæti hann fengið nýja lifur og lifað í mörg ár til viðbótar.