Gibbs-White, Anderson, Onana og Nmecha á blaði Man Utd - Diomande orðaður við ensku úrvalsdeildina - Cambiaso eftirsóttur
   mið 25. febrúar 2026 22:40
Elvar Geir Magnússon
Dregið í 16-liða úrslit á föstudag - Þessi lið geta mæst
Liverpool getur mætt Atletico Madrid eða Galatasaray.
Liverpool getur mætt Atletico Madrid eða Galatasaray.
Mynd: EPA
Athöfnin hefst 11:00 á föstudag.
Athöfnin hefst 11:00 á föstudag.
Mynd: EPA
Nú er ljóst hvaða sextán lið verða í pottunum þegar dregið verður í 16-liða úrslit Meistaradeildar Evrópu. Mögulegir mótherjar raðast eftir því hvar liðin enduðu í deildarkeppninni.

Ef við skoðum möguleika ensku liðanna þá getur Arsenal dregist gegn Bayer Leverkusen eða Atalanta.

Atletico Madrid og Galatasaray eru örugg með enska mótherja. Annað liðið mun fá Liverpool en hitt Tottenham.

Möguleiki er á enskum slag en Chelsea gæti mætt Newcastle. Chelsea á einnig möguleika á að fá PSG og Newcastle gæti fengið Barcelona.

Manchester City getur mætt Real Madrid eða fengið tækifæri til að hefna sín á Bodö/Glimt.

Dregið verður klukkan 11:00 á föstudaginn. Leikirnir í 16-liða úrslitum verða spilaðir 10/11. mars og 17/18. mars.

Lið sem geta mæst í 16-liða úrslitum

Arsenal eða Bayern München gegn Bayer Leverkusen eða Atalanta

Liverpool eða Tottenham gegn Atletico Madrid eða Galatasaray

Chelsea eða Barcelona gegn Newcastle eða PSG

Manchester City eða Sporting gegn Bodö/Glimt eða Real Madrid

Athugasemdir
banner
banner