Gibbs-White, Anderson, Onana og Nmecha á blaði Man Utd - Diomande orðaður við ensku úrvalsdeildina - Cambiaso eftirsóttur
   mið 25. febrúar 2026 21:00
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Lengjubikarinn: Þór skoraði fimm í Mosó
Mynd: Ármann Hinrik
Afturelding 0 - 5 Þór
0-1 Aron Elí Sævarsson ('41, sjálfsmark)
0-2 Christian Jakobsen ('44 )
0-3 Ágúst Eðvald Hlynsson ('49 )
0-4 Ragnar Óli Ragnarsson ('73 )
0-5 Atli Sigurjónsson ('87 )

Afturelding fékk Þór í heimsókn í riðli tvö í A-deild Lengjubikarsins í kvöld.

Gestirnir komust yfir undir lok fyrri hálfleiks þegar Aron Elí Sævarsson varð fyrir því óláni að skora sjálfsmark. Christian Jakobsen bætti síðan öðru markinu við áður en flautað var til loka fyrri hálfleiks.

Snemma í seinni hálfleik var munurinn orðinn þrjú mörk þegar Ágúst Eðvald Hlynsson skoraði og Ragnar Óli Ragnarsson bætti fjórða markinu við.

Þórsarar voru ekki búnir að segja sitt síðasta því Atli Sigurjónsson skoraði fimmta markið undir lok leiksins. Það vekur athygli að Elvar Baldvinsson, sem lék síðast með Þór árið 2022, var í byrjunarliði liðsins í kvöld. Hann lék með Völsungi í fyrra en samkvæmt KSÍ hefur hann fengið félagaskipti en Þór hefur ekki tilkynnt um það.

Þór er á toppnum með sjö stig og á einn leik eftir en Afturelding er í 3. sæti með sex stig og hefur lokið leik.
Athugasemdir
banner
banner
banner